Hringapúðana er hægt að fá saumaða úr möttu satíni og eru til í tveimur litum hvítum eða kremuðum (ivory).

Einnig endurnýtum við efni úr gömlum flíkum t.d. úr hör.  Hringapúðar úr hör geta verið í mismunandi litaúrvali.

Hægt er að fá margar gerðir af köntum á hringapúðana t.d. blúndukant eða perlukant.

Hægt er að fá hringapúðana sérmerkta með nafni og dagsetningu.

Hringapúði úr náttúrulegum hör

5.590 kr.

Einfaldur hringapúði úr hör (linen), sem er 20×20 cm í þvermál.

Fallegur púði í náttúrlegum lit.

Borði úr striga (burlap) og blúndu.

Bönd úr striga.