Persónuverndarstefna okkar gildir um allar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem safnað er gegnum vefinn fjallafruin.is eða með öðrum rafrænum samskiptum. Stefnan hlýtir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ná ekki til lögaðila.

Í allri meðferð upplýsinga viðskiptavini sína hefur Fjallafrúin öryggi og persónuvernd að leiðarljósi og ber ábyrgð á þeim gögnum sem safnað er. 

Persónuupplýsingar verða aðeins afhentar þriðja aðila að því marki sem krafist er á grundvelli laga eða reglna, svo sem Ríkisskattstjóra eða öðrum eftirlitsaðilum.

Fjallafrúin safnar ekki ónauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini sína. Gildir það um heimsóknir á vef Fjallafrúarinnar og önnur rafræn samskipti.

Vafrakökur (e. cookies)

Vafrakökur eru textaskrár sem vafrar (t.d. Google Chrome, Mozilla Firefox o.fl.) vista á tölvum notenda að beiðni vefþjóna. Þegar þú heimsækir vefsíðu sem þú hefur farið á áður biður vefþjónninn vafrann um kökuna sem send er til hans. Vefþjónninn getur þá notað þessar upplýsingar frá vafranum til hvaða vinnslu sem er, t.d. getur kaka geymt notandanafn þitt og lykilorð og stillingar vefsíðu gætu einnig breyst eftir að kaka frá tölvunni þinni hefur verið lesin.

Vafrakökur hafa ákveðið gildistímabil og vafrinn eyðir kökunni þegar það er runnið út. Hver kaka er bundin við þann vefþjón sem sendi kökuna og aðeins sá vefþjónn fær að sjá upplýsingarnar sem kakan geymir.

Vafrakökur okkar innihalda ekki persónuupplýsingar og aðrar vefsíður geta ekki lesið neitt sem er í vafrakökum frá okkur.

Með því að samþykkja skilmála um notkun á kökum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:

      • Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
      • Lengd innlita gesta
      • Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
      • Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
      • Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
      • Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
      • Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður

Viljir þú ekki nota vafrakökur getur þú breytt stillingum í vafranum þannig að hann noti þær ekki. Með því að smella hér finnur þú leiðbeiningar um hvernig þú breytir þessum stillingum í vafranum þínum.

Google Analytics

Vefur Fjallafrúarinnar notar Google Analytics til að mæla umferð á vefnum. Skráð eru atriði eins og dagsetning og tími heimsóknar, frá hvaða vef var komið, gerð vafra og stýrikerfis. Leitarorð sem notuð voru til að fara á vefinn okkar eru einnig skráð. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru skráðar þegar þú heimsækir vefinn og er tölfræðin aðeins notuð til að við getum bætt vefinn enn frekar, t.d. með því að skoða hvaða efni er vinsælt á vefnum hverju sinni.

SSL skilríki

Vefurinn notast við SSL skilríki sem þýðir að öll samskipti milli vafra notanda og vefþjóns eru dulkóðuð sem gerir gagnaflutning öruggari. SSL skilríki varna því að þriðji aðili komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefsíðuna eins og t.d. lykilorð.

Hvernig safnar Fjallafrúin upplýsingum um þig?

Þegar þú nýtir þér netverslun Fjallafrúarinnar gefur þú upp tilteknar upplýsingar um þig og upplýsingar um heimsókn þína verða einnig til.

      • Upplýsingar sem þú gefur upp eru t.d. nafn, kennitala, heimilisfang, netfang, sími, greiðsluupplýsingar og greiðslukortaupplýsingar.
      • Dæmi um upplýsingar sem verða til við heimsókn þína eru persónugreinanlegar upplýsingar á borð við nafn, kennitala, netfang og símanúmer. Landfræðilegar upplýsingar (hvar þú ert stödd/staddur), tungumálastillingar og tegund vafra.

Fjallafrúin geymir engar greiðslukortaupplýsingar og fær einungis upplýsingar hvort að greiðsla hafi farið gegn eða ekki. Allar greiðslur í netverslun fara fram á öruggri greiðslusíðu MyPos.eu.

Réttur þinn

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við kunnum að hafa um þig. Þú getur líka í sumum tilvikum átt rétt á að upplýsingar verði leiðréttar eða þeim eytt.

Ef þú vilt fá upplýsingar um persónugreinanlegar upplýsingar sem við kunnum að hafa um þig getur sent okkur tölvupóst á ellajona@fjallafruin.is