Hölsa hálspúði er saumaður úr mjúku bambus efni og bómullarefni.
Hálspúðinn er fylltur með íslenskri ull og styður vel við hálsinn á ferðalaginu.
Fallegur poki er utan um Hölsu sem hægt er að hengja á ferðatöskuna.
Einnig er hægt að aðlaga magn ullar í púðanum og nota þá pokann fyrir auka ullina sem fellur til.
Hægt er að skrá Hölsu hálspúðana með serialnúmeri sem fylgir hverjum púða.
Halla Auðunardóttir –
Ég var að fá mér þennan hálspúða og hann er fullkominn. Mjög góð hönnun, frágangur og saumaskapur til fyrirmyndar. Svo mjúkur og góður. Þessi er strax kominn í notkun og verður í notkun. Veit ekki hvað ég á marga hálspúða og það hefur enginn verið alveg að henta. Enn og aftur takk fyrir mig Fjallafrúin – saumar / The Mountain Lady – Sewing þetta er mjög flott framleiðsla.