VæruKær
VæruKær
VæruKær kúrukoddi er handverk og er því sérsaumaður fyrir hvern og einn. Varan er þróuð til að henta sem flestum og aðlagar sig að þörfum hvers og eins.
Fyllingin í VæruKær er búin til úr íslenskri ull og getur því þófnað við notkun. Gott er að fríska koddann upp öðru hvoru.
Tvær grunn ullar fyllingar eru í VæruKær. Fyllingarnar eru í lokuðum taupoka og hægt að skipta þeim út fyrir nýjar eða taka úr til að þvo ytra byrðið.
Dindillinn er í hólfi í miðju koddans, hann gerir koddann aðeins þykkari. Hægt er að taka dindilinn úr ef koddinn þykir of þykkur.
Hölsa
VæruKær Hölsa er hálspúði sem er hentugur til að taka með sér í ferðalagið. Hölsa er létt og þægileg saumuð úr mjúku bambus og bómullar efni og fyllt með íslenskri ull.
Fyllingin í Hölsu er úr íslenskri ull. Hægt er að taka úr fyllingunni til að hagræða stærð koddans.
VæruKær Hölsa er handverk og hver koddi því saumaður af alúð.
Sofðu vært
Nánar um vöruna
Forystulína - VæruKær - Hölsa
tegundir
stærðir
Forystulínan
Forystu línan er vatteruð með bambus vatti. Kúrukoddarnir í Forystu línunni halda lögun sinni og eru stífari en VæruKær. Bambus er náttúrulegt efni og temprar hita og kulda eins og ullin. Bambusinn í vattið er ræktaður í USA og vattið er flutt inn þaðan.
Stærðir
VæruKær fæst í fjórum lengdum. Ærin og Skjátan eru lengri, þær er hægt að hafa milli fóta og kúra með þær í fanginu. Þá styðja þær einnig við axlir. Lambið og Gemlingurinn eru styttri og gott að kúra með í fangi eða á milli fóta.
Umhverfisvænt og náttúrulegt.
Ef þú af einhverjum ástæðum hættir að nota VæruKær þá er hægt að skila honum til endurnýtingar. Einnig er hægt að endurnýja ullar fyllingarnar og skila þeim gömlu sem verða endurnýttar og gefið nýtt líf.
Koddaverin utan um VæruKær eru öll saumuð úr 100% bómullarefni. Þau eru mjúk og þægileg viðkomu.
Úrval koddavera má finna í vefverslun Fjallafrúarinnar.
Öll efni sem notuð eru í VæruKær eru vottuð með Oeko-Tex vottun.
Hugmyndin að VæruKær.
VæruKær varð til út frá þörfinni á að sofa betur. Ég hef verið með brjósklos í nokkur ár og þessi hugmynd datt í hausinn á mér einn morguninn þegar ég kúrði með sæng mannsins míns.
Margir eru að kljást við bakverki eða verki í mjöðmum og þá gæti VæruKær hjálpað til við stuðning á þeim svæðum í svefni.
Lambið og Gemlingurinn eru styttri og gott að kúra með í fangi eða á milli fóta.
Lengri gerðirnar eða Ærin og skjátan styðja einnig við axlir í svefni.