Upphlutspils

0

Til að sauma hefðbundið upphlutspils þarf að kaupa tvær síddir af efni sem er að minnsta kosti 140 cm á breidd. Best er að kaupa vandað ullarefni þar sem ullarefni anda mun betur en gerviefni.

Hægt er að kaupa vandað ullarefni í vefverslun Fjallafrúarinnar sjá nánar á Ullarefni – Fjallafrúin

Einnig er hægt að kaupa skófóður sjá nánar Fóður – Fjallafrúin

Ekki er til eiginlegt snið að pilsi þar sem það samanstendur af tveimur ferköntuðum dúkum sem saumaðir eru saman.

Ég geri hér tilraun til að lýsa því hvernig hentugt er að sauma pilsið og í hvaða röð ágætt er að gera það.

Meðfylgjandi er sniðmát fyrir fellingar sem þarf að prenta út í Actual size á A4 blað helst í þykkari kantinum.

Sniðmát PDF skjal til niðurhals.

Tveir dúkar saumaðar saman

  1. Tvær síddir klipptar, síddin er venjulega höfð alveg niður að öklabeini
  2. Klippa kantinn af sitt hvorum dúknum
  3. Sauma annan hliðarsauminn 2 cm og strauja út sauminn, passa þarf að það snúi rétt í efninu þegar það er saumað saman
  4. Merkja fyrir skófóðri,  31 cm neðanfrá
  5. Sauma þunna líningu á kantinn að merki fyrir skófóður, sauma í vél á réttu og leggja niður við í höndum á röngu

Strengur sniðinn

Strengurinn er sniðinn 7 cm breiður

Tekið út fyrir streng á hlið annars dúksins eða ef nægilegt efni er til þá er hægt að taka eina breidd af efninu

Strengurinn er brotinn saman eftir lendinni og pressaður niður og þrætt ca 1 cm frá efri brún

Fellingar

  1. Merkja fyrir fellingum að aftan, 25 stk 1 cm á milli og 4 cm á breidd (2 cm djúpar)(sjá sniðmát)
    1. Fyrsta felling er með sauminn í botni (lengst til vinstri
  2. Fellingar á hliðum eru 7 stk. hvoru megin 1 cm á milli fellinga og dýpt ræðst af vídd
    1. T.d. á mínu pilsi eru þær 4×4 cm og 3×3 cm
  3. Fellingar að framan 3x 3 – 6 cm djúpar fer eftir hversu mikið efni þarf að fella
    1. Hafa 7 cm milli fellinga
    2. Deila niður afgangi af efni í þessa fallbotna
  4. Fellingar falla til hægri þegar horft er á pilsið aftanfrá
  5. Þræða 2x í hverja fellingu að ofan og þræðispor að neðan
  6. Pressa létt ofan á fellingar
  7. Festa fellingar með hnappagatatvinna að innan
    1. Merkja 6 cm og 11 cm frá efri brún
    2. Taka í hverja fellingu og festa með því að sauma yfir sporið
    3. Passa að hafa spottann á milli lausan og enn lausari í neðri þræðingu

(Vasi og klauf) er í vinnslu

  1. Vasi/klauf er í 2. fellingu vinstra megin að framan
  2. Vasi:
    1. Merkja 21 cm klippa 20 cm í fallbotninn
    2. sauma minna vasastykki á frampart með 0,7 mm saumfari, zikzak og amerísk stunga
    3. Renningur 6×27 cm úr fóðri sauma á afturpart, 1 cm saumfar, pressa 1 cm brot, stinga niður á röngunni
    4. Klippa „V“í botninn
    5. Sauma vasatusku (lengd á vasa x 6 cm) á stærri part og loka saumi á innri hlið
    6. Sauma saman vasa með lokuðum saumi (fyrst rangan saman svo réttan saman)
  3. Sauma 6×25 cm fóðurbút á klauf aftanverða

Þegar hér er komið er gott að þræða streng á rétta á móti réttu og þræða hann svo niður til mátunar

Taka sídd í rétta lengd

Skófóður sniðið og saumað

  1. Skófóður:
    1. Sníða 36 cm breitt tvær ræmur
    2. Sauma saman og strauja út sauma
    3. Stinga 1 cm kant öðru megin til að hafa burð þegar það er saumað upp
  2. Sauma skófóður við fald 1 cm saumur alla leið
  3. Stinga Ameríska stungu alveg út á enda
  4. Þræða neðri kant upp frá röngu
  5. Slétta úr skófóðri og næla niður, passa að hafa það slétt og ekki laust milli laga
  6. Þræða í U hafa 20 cm lausa á endum
  7. Leggja niður við efri brún skófóðurs, sporlengdin má vera ca. 1 cm
  8. Sauma hliðarsaum alla leið
    1. Passa að hafa saum á fóðri í samræmi við vídd á pilsi
    2. Láta passa í faldi og efst á fóðri
  9. Pressa út sauma alla leið
  10. Þræða allt aftur
  11. Leggja niður við rest af skófóðri

Strengur saumaður á

  1. Sauma strenginn á í þræðingu
    • Saumfar 1 cm
  2. Brjóta innaf spenum á endum þannig að það sé jafnt brún
    1. Passa að loka sári með endunum
    2. Hafa þá spena 3-4 cm langa
  3. Leggja niður við að innan

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *