Birkilauf

Birkilauf er uppskrift að léttum og nettum trefli. Hann er almunstraður í anda íslenska birkisins. Ég hef ekki lagt í vana minn að búa til uppskriftir en mig langaði bara svo mikið að prjóna mér svona trefil en fann enga uppskrift sem mér líkaði. Ég var með ákveðna mynd í huganum þannig að eftir smá grúsk þá sá ég að það væri ekki svo ýkja flókið að búa til uppskrift. Ég fann mér forrit til að setja hana upp og síðan var þetta pússluspil og smá pælingar.

Ég er mjög ánægð með úkomuna og ég vona að þið verðið líka ánægð með þessa uppskrift. Ég nota Casablanca Lux garnið sem ég er sjálf að flytja inn í Birkilauf og kemur það mjög vel út.

Birkilauf trefill -uppskrift

1.240 kr.

Uppskrift!

Birkilauf trefill er fallegur og léttur trefill sem er innblásinn af íslenska birkinu.

SKU: FJ985361
Category:

Casablanca Lux

1.390 kr.

Afskaplega fallegt og mjúkt garn sem spunnið er úr blöndu af ull, alpakka og bómull. Smá tweed hnoðrar og glimmerþráður poppa garnið upp.

SKU: FJ437795
Category: , ,

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *