Vörumerki
Verslun Fjallafrúarinnar
Hægt að finna mikið úrval af vandaðri vöru ásamt vefnaðarvöru og ýmsu fyrir saumaskapinn.
Sesselja herðaslá er hönnun Fjallafrúarinnar. Sláin heitir í höfuðið á langömmu minni og er til heiðurs kynslóðunum sem hafa rutt veginn fyrir okkur hinar. Sesselja herðaslá hentar sérstaklega vel sem utanyfir flík yfir þjóðbúninga en einnig við öll önnur tækifæri.
Hægt er að fá slána með einföldum pífukanti eða loðkraga frá Feldi verkstæði.
Loðkragi
24.900 kr.Loðkragi frá Feldi verkstæði sérstaklega saumaður til að passa fyrir Sesselju herðaslá.
Sesselja herðaslá
49.900 kr.Sesselja herðaslá er saumuð úr soðinni ull og fóðruð að hluta. Hægt er að skipta um kraga en samlitur pífukragi fylgir með. Hægt að velja þjóðlegan kraga eða feldkraga sem aukahluti.
Sesselja herðaslá er sérstaklega hönnuð sem yfirhöfn yfir þjóðbúninga en hentar að sjálfsögðu við öll tækifæri.


