0 kr.
Maríuhrís legghlífar eru léttar og fallegar. Það er mjög auðvelt að prjóna þær og með sokkagarninu frá Mayflower verða þær skemmtilegar á litinn.
Ókeypis uppskrift.
Mig langaði svo til að prjóna mér legghlífar því ég eignaðist skó sem ég sá að þær gætu komið að góðum notum. Ég rakst á uppskrift á netinu sem var fyrir léttlopa en breytti henni fyrir það garn sem ég var með sem var West Yorkshire sokkagarn.
Garnið sem hentugt er að nota í þessar legghlífar er t.d. Mayflower sokkagarn sem fæst í vefverslun Fjallafrúarinnar.
Mig langar til að deila þessari uppskrift með ykkur og er hún því ókeypis og hægt að hala niður og byrja að prjóna. Grunnur og hugmynd fengin hér.
Nafnið á legghlífunum sæki ég í örnefni inni á Tungufellsdal en þar eru Maríuhrís. Mér fannst það passa þar sem munstrið sem notað er heitir Maríutásur.

Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.