Kirkjan, bókin og búningurinn
Fræðistund
Í Tungufellskirkju er hægt að bóka fyrirlestur um kirkjuna og íslenska þjóðbúninginn. Fyrirlesturinn er um 20 til 30 mínútur en bókuð er ein klukkustund þar sem hægt er að skoða kirkjuna og þá búnininga sem til sýnis eru. Fræðistund er bókuð eftir samkomulagi sjá hér neðar.
Farið er yfir sögu kirkjunnar og einnig er sagt frá Tungufellsbúninginum og tengingu hans við kirkjuna. Til sýnis eru nýlega saumaður faldbúningur sem tengist kirkjunni á skemmtilegan máta og peysuföt sem eru um 150 ára gömul en þau átti langamma fyrirlesarans, einnig er til sýnis 20. aldar upphlutur í eigu heimasætunnar á bænum. Fyrirlesarinn klæðist 19. aldar upphlut á meðan á fræðistundinni stendur.
Fyrirlesturinn er í boði á íslensku eða ensku. Vinsamlegast athugið að takmarkað pláss er í kirkjunni og því er gott að bókið tíma fyrirfram, upplýsingar hér að neðan.
Fræðistund er tilvalin fyrir smærri hópa t.d. starfsmannaferðir, saumaklúbba og óvissuferðir. Ef um stóra hópa er að ræða þá er hægt að segja frá búningunum og kirkjunni í rútu viðkomandi hóps og verða þá búningarnir til sýnis inni í kirkjunni eftir fyrirlesturinn.
Fræðistund!
Verð:
- Fast bókunargjald: kr. 5000,-
- Fullorðnir: kr. 1200,-
- Börn 12 ára og yngri: frítt
Fjallafrúin -saumar-
Fjallafrúin hefur rekið Brúðarslör.is frá árinu 2001 og sauma hringapúða og brúðarslör. Árið 2022 bættust vörumerkin VæruKær, Hnoðri og Þófi við í vöruúrvalið. VæruKær er kúru koddi til að sofa með milli fóta eða í fanginu. Hnoðri er ungbarnahreiður hentugur fyrir aldur frá nýfæddu til um 6 mánaða. Þófi er gæludýraból og fleti fyrir smádýr.
Tungufellskirkja, bókin og búningurinn
Í Tungufellskirkju er hægt að bóka fyrirlestur um kirkjuna og íslenska þjóðbúninginn.
Bókin – Tungufellsfaldbúningurinn fjallar í máli og myndum um gerð 19. aldar faldbúnings. Frá hugmynd að fullgerðum faldbúningi. Faldbúningurinn hefur skemmtilega tengingu við Tungufellskirkju í Hrunamannahreppi.
Bókin inniheldur mikið af myndum og lýsingar eigandans af ferli og tilurð búningsins.
Bókin er 38 blaðsíður prentuð á fallegan ljósmyndapappír.
Bókin er bæði á íslensku og ensku.