Slörið kemur samanpakkað og getur verið svolítið krumpað þegar það kemur. Best er að láta slörið einfaldlega hanga í smá tíma þá jafnar það sig.
Ekki er gott að strauja slörið þar sem það er úr þannig efni að það getur bráðnað, ef þú hefur aðgang að gufutæki er gott að gufa það frekar.
Einnig getur verið gott að hengja það í smá stund upp á rökum stað t.d. inn í baðherbergi.
Slörið kemur með kambi og þarf að festa hann rétt í svo að slörið snúi rétt og fari vel.
Staðsetning slörsins í hnakkanum fer eftir hárgreiðslu og vilja hvers og eins.
Haltu kambinum þannig að hann myndi „U“ og tindarnir snúi fram. Slörið á að vera aftur með hnakkanum og ef það er tvöfalt á styttri hlutinn að snúa upp.
Nú er kambinum snúið niður og honum stungið í hárið.
Gott er að hafa hnút í hárinu eða setja spennur í hárið ásamt hárspreyi til að hafa festu fyrir kambinn.
Kamburinn ætti nú að vera vel fastur í hárinu
Gott er að festa kambinn betur með spennum þegar búið er að setja slörið í.
No account yet?
Create an Account