Birkilauf trefill -uppskrift

1.240 kr.

Uppskrift!

Birkilauf trefill er fallegur og léttur trefill sem er innblásinn af íslenska birkinu.

Vörunúmer: FJ985361 Flokkur: Brand:

Birki serían er innblásin af íslenska birkinu og inniheldur trefilinn Birkilauf og sjalið Birki. Uppistaðan er gatamynstur sem svipar til birkilaufa og er afskaplega skemmtilegt að prjóna það.

Garnið sem notað er í þessar uppskriftir er Casablanca Lux frá Mayflower en það fæst í mörgum litum í vefverslun Fjallafrúarinnar.

Sjá nánar Casablanca Lux – Fjallafrúin

Uppskriftir Fjallafrúarinnar.

Fjallafrúin hefur ekki verið að prjóna mikið en er nýlega farin að taka upp prjónana aftur. Það er mjög gefandi að hafa eitthvað á prjónunum til að grípa í.

Allar uppskriftir koma í þrenns konar formi. Hægt er að hala þeim niður í pappírsformi bæði sem teiknuðu mynstri og sem ritaðri töflu. Þriðji valmöguleikinn er að fá mynstrið í spjaldtölvu þar sem hægt er að nota framvindumerki á meðan verið er að prjóna.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Birkilauf trefill -uppskrift”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *